Skotíþróttasamband Íslands (Icelandic Shooting Sports Association)

Heim

 

 

 

 

 

LÖG SKOTÍÞRÓTTASAMBANDS ÍSLANDS

Samþykkt á skotþingi 2005

 1. grein

 Skotíþróttasamband Íslands, skammstafað STÍ, er æðsti aðili skotíþróttarinnar innan vébanda Íþróttasambands Íslands. Aðsetur STÍ og varnarþing er í Reykjavík.

 2. grein

 STÍ er samband skotráða héraðssambanda og íþróttabandalaga. Öll þau félög innan ÍSÍ sem iðka æfa og keppa í skotíþróttum skv.  reglum ISSF geta orðið aðilar að STÍ.

 3. grein

 STÍ er aðili að Alþjóða skotíþróttasambandinu ISSF, Evrópuskotsambandinu ESC og Skotsambandi Norðurlanda NSR.

4. grein

 Starf STÍ er í meginatriðum:

 a) að hafa með höndum yfirstjórn skotíþrótta sem iðkaðar eru skv. reglum ISSF.

 b) að vinna að eflingu skotíþróttarinnar.

 c) að vera málssvari hvað varðar skotíþróttir sem iðkaðar eru skv. reglum ISSF innanlands og erlendis.

 5. grein

 Skotíþróttasambandi Íslands er stjórnað af:

 a) Skotíþróttaþingi.

 b) Stjórn STÍ.

 6. grein

 Reikningsár STÍ er almanaksárið

 Skotíþróttaþing

 7. grein

 Skotíþróttaþing er æðsta framkvæmdavald um málefni STÍ. Skotíþróttaþing skal haldið í janúar til maí ár hvert og skal þingið boðað bréflega með minnst eins mánaðar fyrirvara.

 Stjórn STÍ tekur ákvörðun um fundarstað

 Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á skotíþróttaþingi, skulu tilkynnt stjórn STÍ bréflega minnst 3 vikum fyrir þing. Þó getur þingið tekið fyrir ný mál, sem ekki uppfylla þetta skilyrði, ef það er samþykkt með 2/3 atkvæða þingfulltrúa. Stjórn STÍ skal tilkynna sambandsaðilum dagskrá þingsins ásamt tillögum sem borist hafa minnst 14 dögum fyrir þing.

 Skotíþróttaþing er lögmætt ef löglega er til þess boðað.

 8. grein

 Skotíþróttaþing sitja fulltrúar frá þeim aðilum sem mynda STÍ.

 Fulltrúafjöldi hvers aðila fer eftir tölu iðkenda skotíþrótta. Fyrir 20 til 50 iðkendur koma 2 fulltrúar og 1 fulltrúi að auki fyrir hverja byrjaða 50 þar fram yfir.

 Kjörgengi og kosningarétt til skotíþróttaþings hafa þeir félagar skotíþróttafélaga sem náð hafa 16 ára aldri.  Á skotíþróttaþingi hafa kjörnir fulltrúar einir atkvæðisrétt. Auk þeirra hafa eftirtaldir rétt til þingsetu með málfrelsi og tillögurétt.

 a) Stjórn og varastjórn STÍ

 b) Framkvæmdastjórn ÍSÍ.

 c) Allir nefndarmenn STÍ

 d) Auk þess getur stjórn STÍ boðið öðrum til þingsetu telji hún ástæðu til.

 Aðeins sá sem er í félagi sem iðkar skotíþróttina innan sérráðs eða héraðssambands er kjörgengur fulltrúi þess á skotþingi.  Hver fulltrúi fer með 1 atkvæði. Þó má heimila að fulltrúi fari með 2 eða fleiri atkvæði en aðeins atkvæði þess sérráðs eða héraðssambands sem hann er fulltrúi fyrir. Þessi heimild á við þegar fulltrúi hefur forfallast eða ef langt er eða kostnaðarsamt að sækja þing. Þessi undanþága á ekki við fulltrúa sem búsettir eru þar sem þing er háð nema um skyndileg forföll sé að ræða. Umboð sem jafnframt er beiðni til þingsins um að fulltrúi fari með 2 eða fleiri atkvæði skal vera skriflegt og frá stjórn hlutaðeigandi sambandsaðila. 

  9.grein

 Aukaþing má halda ef nauðsyn krefur eða ef helmingur sambandsaðila óskar þess. Alla boðunar og tilkynningarfresti má hafa helmingi styttri en til reglulegs þings.

 Fulltrúar á aukaþingi eru þeir sömu og voru á næsta reglulegu þingi á undan og gilda sömu kjörbréf. Þó má kjósa nýjan fulltrúa í stað þess sem hættur er að starfa innan viðkomandi héraðssambands eða skotráðs eða hefur forfallast og verður kjörtímabil hans jafnlangt þess sem áður var fulltrúi.

 Á aukaþingi má ekki gera lagabreytingar og ekki kjósa stjórn nema bráðabirgðastjórn, ef meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hefur sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum, eða stjórnin að eigin dómi orðið óstarfhæf. Að öðru leyti gilda sömu reglur um aukaþing og reglulegt þing.

 10. grein

 Störf skotíþróttaþings eru:

 1. Þingsetning.

 2. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.

 3. Kosning þingforseta og þingritara.

 4. Kosning starfsnefnda þingsins.

 a) Fjárhagsnefnd

 b) Laganefnd

 c) Allsherjarnefnd

    Nefndir þessar eru skipaðar þrem mönnum hver.

 5. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.

 6. Gjaldkeri leggur endurskoðaða reikninga fram til samþykktar.

 7. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.

 8. Lagðar fram lagabreytingar sem fram hafa komið.

 9. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar.

 10. Þinghlé og nefndir taka til starfa.

 11. Nefndarálit og tillögur og atkvæðagreiðsla um þær.

 12. Ákvörðun á keppnisgjaldi og félagaskiptagjaldi til STÍ.

 13. Ákvörðun kærugjalds.

 14. Kosning formanns, tveggja manna í stjórn og eins í varastjórn

 15. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara.

 16. Kosning þriggja manna í mótanefnd STÍ og þriggja til vara.

 17. Kosning þriggja manna í dómaranefnd STÍ og þriggja til vara.

 18. Kosning þriggja manna í aganefnd STÍ og þriggja til vara.

 19. Kosning þriggja manna í ritnefnd STÍ og þriggja til vara.

 20. Kosning fulltrúa á ÍSÍ þing.

 21. Önnur mál.

 22. Þingslit. 

 Fái tveir eða fleiri jafnmörg atkvæði í kosningu skal kjósa um þá sem jafnmörg atkvæði fengu að nýju. Verði þeir aftur jafnir, ræður hlutkesti.

 Einfaldur meirihluti ræður nema þegar um lagabreytingar sé að ræða. Við lagabreytingar þarf 2/3 greiddra atkvæða til að samþykkja tillögu.

 Ársskýrslu STÍ skal leggja fjölritaða fyrir þingið.

 Fundargerðir skotíþróttaþings skal senda framkvæmdastjórn ÍSÍ, sambandsaðilum STÍ og aðildarfélögum innan þriggja mánaða frá þingslitum.

 11. grein

 Stjórn STÍ skipa 5 menn, formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi auk tveggja varamanna.

 Formaður er kosinn til eins árs. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára og skulu aðeins kosnir tveir stjórnarmenn og einn varamaður í senn enda eigi þá tveir stjórnarmenn og einn varamaður eftir ár af sínu kjörtímabili.

 12.grein

 Kærugjald skal fylgja lögum og reglum viðkomandi alþjóðasambands. Kærugjald endurgreiðist ef kærandi vinnur málið.

 

Stjórn STÍ

 13. grein

 Starfssvið stjórnar STÍ er:

 a) Að fara með málefni STÍ milli skotíþróttaþinga.

 b) Að framkvæma ályktanir skotíþróttaþings.

 c) Að vinna að eflingu skotíþróttarinnar.

 d) Að staðfesta og skrásetja Íslandsmet.

 e) Að setja leikreglur og reglugerðir fyrir skotíþróttina.

 f) Að semja við félög og einstaklinga um þátttöku í mótum erlendis.

 g) Að sjá um val í landslið.

 h) Að taka ákvarðanir um veitingu heiðursviðurkenninga.

 i) Að senda sambandsstjórn og framkvæmdastjórn ÍSÍ lögboðnar skýrslur og tilkynningar.

 j) Að líta eftir því að lög og leikreglur STÍ séu haldin.

 k) Að annast samskipti við ISSF, ESC og NSR.

 14. grein

 a: Formaður STÍ boðar stjórnarfundi og stjórnar þeim.

 15. grein

 Skotsérráðin ( héraðssamböndin) eru milliliðir milli félaga sinna og stjórnar STÍ. Þau skulu senda henni allar skýrslur um mót sem haldin eru innan umdæmisins. Þessar skýrslur skulu sendar innan mánaðar eftir að móti lýkur. Ársskýrslur héraðssambanda um störf sérráða og nafnalista virkra félaga í umdæminu skal senda stjórn STÍ fyrir 1.ágúst ár hvert. Á þeim byggist fulltrúaréttur þeirra á skotíþróttaþingi sbr. 6. gr.

 Sé ofantöldum skilyrðum ekki framfylgt geta skotsérráðin ( héraðssamböndin) misst hlutgengi sitt til skotíþróttaþings með úrskurði stjórnar STÍ.

 16. grein

 Stjórn STÍ skal í samráði við hlutaðeigandi héraðssambönd vinna að stofnun nýrra sérráða.

 17. grein

 Stjórn STÍ hefur frjálsan aðgang að öllum skotíþróttamótum og sýningum sem fram fara innan vébanda STÍ. Einnig á hún rétt á að sitja aðalfundi sérráða, dómarafélaga og héraðssambanda, sem aðilar eru að sambandinu.

 18. grein

 Heiðursfélaga STÍ má stjórn kjósa ef hún er einhuga um það.

19. grein

 Tillögur um að leggja STÍ niður má aðeins taka fyrir á lögmætu skotíþróttaþingi. Til að slík tillaga hljóti þarf minnst 3/4 atkvæða. Hafi tillaga þessa efnis verið samþykkt, skal gera öllum sambandsaðilum grein fyrir henni í þingskýrslu og síðan skal tillagan látin ganga til næsta reglulegs þings. Verði tillagan þá aftur samþykkt er það fullgild ákvörðun um að leggja STÍ niður og skal þá afhenda ÍSÍ. eignir STÍ til varðveislu.

 20.grein

 Lög ÍSÍ gilda um þau atriði sem ekki er tekið fram í lögum þessum.

 Lög þessi voru samþykkt á Skotþingi  21.maí 2005