Skotíþróttasamband Íslands (Icelandic Shooting Sports Association)

 

 

 

 

 

ANDORRA FRÉTTIR

8.júní 2005  Komnar nýjar myndir frá Andorra hérna

4.júní 2005  Nú eru keppendur okkar á heimleið frá ANdorra með flugi frá Barcelona. Einhver töf er á fluginu og er reiknað með að vélin lendi í Keflavík um kl.03:00 aðfararnótt sunnudagsins. Rúturnar ættu síðan að verða í Laugardal kl.04:30 ef allt gengur skv.áætlun.

3.júní 2005  Keppni í skeet var að ljúka og endaði Örn Valdimarsson í 4.sæti  en hann skaut 23 dúfur í úrslitunum og læddist við það uppfyrir Vella frá Möltu sem endaði á 131 en Örn var á 132. Moreno Benedettini frá San Marínó náði bronsinu með 133. Kýpverjarnir voru skæðir og tóku gull og silfur. Nánari upplýsingar um skor er að finna á heimasíðu leikanna.

3.júní 2005 Þá er undankeppni í Skeet lokið og er röðin fyrir úrslit þessi: Andreou 115, Chasikos 114, Moreno 111, Vella 109, Örn 109 og Gunnar 96. Nú eru úrslitin eftir þar sem þeir skjóta 25 skotum þannig enn getur Örn náð verðlaunasæti ef hann nær góðum lokahring. Úrslitin hefjast kl.13:00 að okkar tíma.... kl.11:49

3.júní 2005 Keppni í Double Trap er nú hafin og eftir fyrsta hring er Chetcuti frá Möltu efstur á 45 dúfum og Zonizini frá San Marínó annar á 44.

3.júní 2005 Þá er 4.hringur búinn og skaut Örn 21 dúfu en Gunnar 16. Fyrstur er núna Andreou frá Kýpur á 92 dúfum, Chasikos frá Kýpur er á 90 og svo kemur Örn á 88. Vella frá Möltu er með 87 dúfur og Moreno frá San Marínó á 86. Gunnar kemur svo síðastur á 77 dúfum... kl.11:25

2.júní 2005 Okkar menn í loftskammbyssunni kepptu í dag og komst Ásgeir í úrslitin og hafnaði að lokum í áttunda sæti. Hannes komst aftur á móti ekki í úrslit að þessu sinni. Í haglabyssunni er Örn í þriðja sæti eftir fyrri daginn og Gunnar í því sjötta. Á morgun fer fram seinni hluti keppninnar og er hægt að fylgjast með hérna.  Myndir eru farnar að berast frá okkar mönnum og eru þær aðgengilegar hér til vinstri undir myndir.

2.júní 2005 STÍ síðan er nú loksins komin upp aftur en bilun varð í aðaltölvunni hjá ÍSÍ þar sem við hýsum síðuna.

31.maí 2005 Skotkeppnin hófst í dag og var keppt í fyrra hluta haglabyssu TRAP. Enginn Íslendingur er þar skráður til keppni enda ekki keppt í greininni á Íslandi, þó það standi til bóta, því á nýju svæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi er reiknað með fullkomnum Ólympískum TRAP-velli, sem nýtast mun til alþjóðlegra keppna í framtíðinni. Möltu og San Marínó menn eiga keppnismenn á heimsmælikvarða í þessari grein og eru að slást um verðlaunasætin. Kýpverjar eru vaxandi í Trap og eins er keppandi frá Luxemborg, Armandt Dousemont, afar sterkur en hann er kominn á sjötugsaldurinn. Nánari fréttir á morgun. Eftir fyrri daginn er Francesco Amici frá San Marínó efstur með 74 stig (25+25+24) en þrír skotmenn koma fast á hæla hans með 73 stig, þannig að keppnin er afar tvísýn og spennandi.  Á morgun er einnig keppt í Loftriffli en okkar maður, Guðmundur Helgi, varð að draga sig í hlé og fór því ekki með til Andorra.

31.maí 2005 Fréttir voru að berast frá skotmönnum okkar og eru Gunnar og Örn afar ánægðir með alla aðstöðu sína á skotvellinum, en aðstaðan í loftbyssusalnum hjá Hannesi og Ásgeiri hefur sést betri. Þeir eru samt allir mjög jákvæðir og eru að byggja upp keppnisspennuna. Þeir byrja keppni á fimmtudaginn og lýkur loftbyssukeppninni um kvöldið en í haglabyssunni er einnig keppt á föstudeginum.

30.maí 2005 Setning leikanna fór fram í kvöld. Nánar hérna

29.maí 2005 Dagskrá leikanna má sjá á hérna

29.maí 2005 Þá eru okkar menn komnir til Andorra. Fararstjóri og jafnframt liðsstjóri loftskammbyssumanna er Jón S. Ólason, formaður STÍ og liðsstjóri haglabyssumanna er Halldór Axelsson, stjórnarmaður í STÍ. Á morgun er hvíldardagur hjá þeim en æfingar hefjast svo á þriðjudaginn.

27.maí 2005 Guðmundur Helgi Christensen, sem var skráður til keppni í Loftriffli, varð að draga sig í hlé vegna meiðsla og fer því ekki til Andorra.

27.maí 2005 Hér eru keppendur okkar f.v. Hannes Tómasson og Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu, Gunnar Gunnarsson og Örn Valdimarsson í haglabyssu Skeet.

¾